Narrow screen resolution Wide screen resolution Auto adjust screen size Increase font size Decrease font size Default font size default color grey color red color blue color

Engidalsskóli

Engidalsskóli
Samvera 7. JM Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

IMG_7584Samvera hjá miðstigi
Nemendur í 7. JM sáu um að skemmta nemendum, foreldrum og starfsfólki í samverustund í morgun, fimmtudag. Sýnd voru skemmtileg atriðið og þar á meðal frumsamið leikrit. Þökkum þessum flottu krökkum kærlega fyrir skemmtunina.

 
 
Kennaramenntun í deiglu Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Kennaramenntun í deiglu – samræða um menntun kennara
Ákveðið var árið 2008 að frá og með árinu 2011 ætti kennaramenntun að ljúka með meistaragráðu. Af þessu tilefni boðar Menntavísindasvið til fimm opinna funda um þetta málefni á tímabilinu 26. apríl til 23. júní.  Vinsamlega kynnið ykkur frekari upplýsingar um þetta málefni í meðfylgjandi skjölum.
Kennaramenntun í deiglu
dagskrá

 
100 miða leikurinn Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

bikarVinningshafar í 100 miða leik.
Nú er 100 miða leik SMT lokið og var hið dularfulla umslag sem innhélt vinning og vinningshafa opnað í gær. Í ljós kom að röð sjö lóðrétt bar sigur úr bítum og í þeirri röð voru: Agnes og Jón Arnar úr 1. HK, Erion úr 1. SS, Úlfa Dís úr 3.VV, Sigurður Dan og Aþena Þöll úr 4.KS, Stefán úr 5. BL, Elín Hanna úr 6.SB og Eyja og Dalrós úr Urriðakoti. Í vinning fá þau út að borða á Hróa Hetti með skólastjóranum, farið verður á skólatíma fljótlega. Við óskum þessum krökkum innilega til hamingju með vinninginn.

 
Fréttatilkynning 19. apríl 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra, verða afhent í 15. sinn við hátíðlega athöfn í  Þjóðmenningarhúsinu þriðjudaginn 1. júní kl. 15:00. 
Heimili og skóli – landssamtök foreldra óska eftir tilnefningum til Foreldraverðlauna 2010 frá einstaklingum, félögum eða hópum sem vilja vekja athygli á vel unnum verkefnum, sem stuðla að eflingu skólastarfs og jákvæðu samstarfi heimila, skóla og samfélagsins.

Lesa meira...
 
Dagsetningar samræmdra könnunarprófa haustið 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Dagsetningar samræmdra könnunarprófa í 4. og 7. bekk haustið 2010 verða sem hér segir:
4. og 7. bekkur
Íslenska – fimmtudagur 17. september kl. 09:00-12:00.
Stærðfræði – föstudagur 18. september kl. 09:00-12:00.Próftíminn skiptist þannig í 4. og 7. bekk
Yfirlit um próftíma:
Bekkur        Upphaf          próftími                Hlé                        Lok
7.                 09:00             2x70 mín lotur   10:10 (20 mín)           11:40
4.                 09:00             2x60 mín lotur   10:00 (20 mín)            11:20
Nánari upplýsingar má finna inn á www.namsmat.is og einnig http://www.namsmat.is/vefur/samr_prof/grunnskolar/10framkvamd.html

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 3 af 12

Myndir úr skólastarfi

  • myndir úr skólastarfi
  • myndir úr skólastarfi
  • myndir úr skólastarfi
  • myndir úr skólastarfi
  • myndir úr skólastarfi
  • myndir úr skólastarfi
  • myndir úr skólastarfi
  • myndir úr skólastarfi
  • myndir úr skólastarfi
  • myndir úr skólastarfi
  • myndir úr skólastarfi
  • myndir úr skólastarfi
  • myndir úr skólastarfi

Gagnlegir tenglar

Mentor Mentor
Matartorg Matartorg
Hafnarfjörður Hafnarfjörður