|
|
|
Núna eru komnar myndir frá öllum árgöngum frá þemadögunum undir myndasafn. Þessi mynd hér við hliðina er af hópknúsi, nemenda, kennara og foreldra. |
|
7. bekkir skólans tóku þátt í söfnuninni Börn hjálpa börnum sem ABC barnahjálp stendur fyrir. Nemendur fóru af stað með söfnunarbauka í skólahverfinum nú í mars og söfnuðu 79.562.-. Þessir peningar renna til barnaskóla á Indlandi sem þjóna mun 250 börnum á El Shaddai barnaheimilinu í Tamil Nadu á Suður-Indlandi. |
|
Páskaleyfi nemenda er frá mánudeginum 29. mars til þriðjudagsins 6. apríl. Starfsfólk Engidalsskóla sendir nemendum sínum og fjölskyldum þeirra innilegustu páskakveðjur. |
|
5. BL sem sá um að skemmta nemendum og foreldrum á samverustund þann 25.mars. Þau voru með fjölbreytt atriði eins og tónlistaratriði, leikrit og spurningarþátt. Við þökkum þeim kærlega fyrir skemmtunina. |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 4 af 12 |