|
Í dag hófst þemavika hjá okkur Í Engidalsskóla sem ber heitið ,,Hreyfing og hollusta“. Við byrjum alla daga með því að taka góða hreyfingu saman. Hér í meðfylgjandi myndaalbúmi má sjá myndir frá fyrstu hreyfistund þemadaganna.

|
|
|
Miðvikudagur, 17 Mars 2010 11:54 |
|
Föstudaginn 12. mars var samverustund hjá nemendum í 1.-4. Bekk. Umsjón með skemmtuninni hafði 3. IB og voru þau með fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Meðal annars var lesið úr sögum, sungið og sýndur breakdans. Við þökkum þessum vösku krökkum fyrir flotta og skemmtilega dagskrá.
|
|
Þriðjudaginn 16. mars 6.-7. bekkur er í skólanum í stöðvavinnu hjá umsjónarkennurum og sérgreinakennurum. Miðvikudagur 17. mars 3.-4. bekkur er í stöðvinnu hjá umsjónarkennurum og sérgreinakennurum. Fimmtudagur 18. mars 1.-2. bekkur er í stöðvavinnu hjá umsjónarkennurum og sérgreinakennurum. Föstudagur 19. mars Fjölskyldudagskrá frá 8:10-9:30. Síðan heldur dagskrá nemenda áfram. Dagskrá 8.10- 8.30 Hreyfistund á skólalóð 8.30-10.00 Þema 10.00-10.20 Frímínútur 10.20-12.00 Þema 12.00-13.00 Matur og næðisstund |
|
ABC barnahjálp stendur um þessar mundir fyrir söfnuninni Börn hjálpa börnum. 7. bekkir skólans tóku þátt í henni að þessu sinni. Allir baukar eru komnir til baka og það verður gaman að fá að vita hversu mikið safnaðist. Við munum veita upplýsingar um leið og söfnuninni lýkur og peningarnir hafa verið taldir. |
|
Á föstudag sáu krakkarnir í 3.VV um skemmtiatriði á samverustundinni. Nemendur stóðu sig með stakri prýði og þökkum við þeim kærlega fyrir skemmtilega stund. Myndir frá skemmtuninni er að finna hér.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 5 af 12 |