| Saga skólans |
|
|
|
|
Engidalsskóli var stofnaður haustið 1978, sem yngri-barnaskóli þ.e. fyrir börn á aldrinum 6 ára til og með 9 ára. Strax eftir fyrsta skólaárið var tekin sú ákvörðun af bæjarfélaginu að nemendur skólans skyldu vera á aldrinum 6 ára til 10 ára þ.e. 1. til 4. bekkur, varð þessi breyting vegna fjölda barna í hverfinu. Næstu árin var skólinn þrísetinn og nemendur 440 þegar flest var. 1988 varð enn breyting á skólagerðinni. Var þá byggt við skólann, tvær almennar kennslustofur, lítið skólaeldhús, smíðastofa, saumastofa og aðstaða fyrir hjúkrunarfræðing. Þá var einnig tekin sú ákvörðun að í skólanum skyldu vera nemendur í 1. til og með 7. bekk. Fjöldi barna í hverfinu var nú aðeins minni og því möguleiki á að tvísetja, í stað þrísetningar. Það starfsfólk er hóf störf við skólann 1978, hefur því unnið mikið brautryðjendastarf, gengið í gegnum miklar breytingar og lagt góðan grunn af því starfi sem fram fer í skólanum í dag. Fimmtán starfsmenn er hófu störf við skólann 1978 eru hér flestir enn 26 árum síðar. Í dag eru við skólann 55 starfsmenn. Árið 1994 var stofnuð við skólann sérdeild fyrir fötluð börn. Deildin var lengi starfandi í tveimur bekkjardeildum, en nú ein deild á miðstigi. Haustið 1999 var skólahúsnæðið stækkað vegna áætlunar um einsetningu grunnskólanna. Nýja byggingin er um 2500 fermetrar og eru þar hátíðarsalur, bókasafn, tölvuver, hússtjórnarstofa og aðrar sérgreinastofur og stjórnunaraðstaða. Í eldri byggingunni voru gerðar miklar breytingar og eru þar nú eingöngu almennar kennslustofur. Í allar heimastofur voru sett ný húsgögn sem eru stillanleg miðað við vinnuhæð kennarans og barnanna. Starfsemi Engidalsskóla byggir á lögum, reglugerðum og Aðalnámskrá grunnskóla. Skólinn setur manngildissjónarmið fremst í stefnumótun sinni með SMT um skólafærni þar sem einkunnarorð skólans eru virðing, ábyrgð og vinátta auk þess sem skólinn er forystuskóli í umhverfismennt í Hafnarfirði. Næstu fimm ár verður unnið að heildstæðu skólaþróunarverkefni í umhverfismennt. Starfshættir skólans mótast í samvinnu við heimilin og skal stuðlað að alhliða þroska hvers nemanda. Þannig verða nemendur undirbúnir til þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi sem sífellt er að breytast. Í öllu starfi skólans er leitast við að taka mið af aldri, þroska og getu nemenda og eftir megni að koma til móts við þarfir hvers og eins. Kennd eru skipuleg vinnubrögð og færni sem opnar nemendum leiðir til að afla sér þekkingar, stuðlar að sjálfstæðri hugsun og auðveldar þeim samstarf og samvinnu. Skólaárið 2006-2007 hóf nýr skólastjóri störf við skólann og í skólanum eru 272 nemendur í 1. – 7. bekk þar af 6 nemendur í sérdeild. Við Engidalsskóla starfa tæplega 60 manns í mismunandi stöðuhlutföllum. Sundkennsla fer fram í Sundhöll Hafnarfjarðar og íþróttir eru að hluta til kenndar í íþróttahúsi Víðistaðaskóla. Skólinn er opinn mánudaga til föstudaga frá kl. 7:45 til kl. 16:00, en gæslan fyrir nemendur í 1. -4. bekk starfræt fyrir kennslu frá klukkan 7:30 og aftur eftir skólatíma til klukkan 17.00. Öll forföll ber að tilkynna á skrifstofutíma eins fljótt og hægt er í síma 555-4433. Leyfi til lengri tíma en eins dags þarf að sækja um skriflega og þau leyfi veita skólastjóri og aðstoðarskólastjóri að beiðni foreldra. Talsvert er um að foreldrar biðji um lengri leyfi fyrir nemendur, algengast vegna utanferða viðkomandi fjölskyldu. Langar fjarverur nemenda, jafnvel ár eftir ár geta haft í för með sér verulega röskunn á námsferli þeirra. |