Forkeppni Stóru upplestrarkeppninnar var haldin hátíðlega í sal skólans í dag. Í keppninni voru tíu nemendur úr 7. bekk sem kepptu um að komast í úrslitakeppnina sem haldin verður í Hafnarborg þann 23. mars næstkomandi.
Þeir sem komust úr bekkjarkeppninni í forkeppnina voru: Kristín Þórarinsdóttir, Þorsteinn Hálfdanarson, Árni Freyr Magnússon, Bjarki Reynir Bragason, Unnar Lúðvík Björnsson, Dagur Harðarson, Arnór Stefánsson, Sigurður Pálsson, Margrét Atladóttir og Freyja Húnfjörð Jósepsdóttir. Þessir nemendur lásu upp ljóð og sögu og stóðu sig öll með prýði. Þeir sem komust áfram og keppa fyrir hönd Engidalsskóla í Hafnarborg verða Þorsteinn Hálfdanarson og Unnar Lúðvík Björnsson og til vara var valinn Bjarki Reynir Bragason. Við þökkum öllum þessum nemendur kærlega fyrir frábæra skemmtun og óskum þeim sem komust áfram góðs gengis í Hafnarborg.