Þriðjudaginn 2. mars komu tilvonandi 1. bekkingar í heimsókn í Engidalsskóla frá Norðurbergi. Nemendur tóku þátt í daglegu starfi hjá 1. bekk og fóru líka í frímínútur. Við þökkum kærlega fyrir ánægjulegan dag og hlökkum til að sjá þá næsta haust.