|
Foreldrakönnun Engidalsskóla janúar 2010 |
|
|
|
|
Miðvikudagur, 03 Mars 2010 14:30 |
|
Samkvæmt starfsáætlun var lögð fyrir foreldra viðhorfskönnun í janúar. Tilgangur könnunarinnar var að skoða viðhorf og ánægju foreldra með skólastarfið. Tekið var tillit til upplýsingagjafar, samstarfs og líðan nemenda í skólanum. Könnunin var send út á rafrænu formi á netfang móður og foreldrar beðnir um að fylla út svarblað fyrir hvert barn. Svörun var 140/253 eða fyrir 55,3 % nemenda í skólanum. Niðurstöður hafa verið kynntar starfsmönnum skólans og verða notaðar í matsskýrslu fyrir skólaárið 2009-2010 og umbótaverkefni í áætlanir fyrir næsta skólaár. Vil ég þakka þeim sem svöruðu. Kær kveðja, skólastjóri.
|