|
SMT skólaleikur - 100 miða leikurinn |
|
|
|
|
Mánudaginn 12. apríl ætlum við í Engidalsskóla að bregða á leik. Þá verður farið í leik sem tengist SMT og er kallaður 100 miða leikurinn. Leikurinn gengur út á það að tveir starfsmenn fá fimm sérmerkta hrósmiða hvor og eiga að veita nemendum þá fyrir viðeigandi hegðun. Þegar nemandi fær þennan sérmerkta hrósmiða sýnir hann umsjónarkennara miðann sem sendir tölvupóst heim til foreldra og lætur þá vita af því að þeirra barn hafi fengið sérstakan hrósmiða fyrir rétta og góða hegðun.
Nemandinn fer svo með miðann á skrifstofuna, sýnir miðann sinn og dregur númer. Númerið sem hann dregur segir til um hvar á 100 miða spjaldið (sem hangir frammi í anddyri) nemandinn setur miðann sinn sem hann er búinn að merkja með nafni og bekk. Ritari skráir nafn nemandans í sérstaka 100 miða bók við það númer sem hann dró. Leikurinn stendur yfir í tvær vikur, 10 virka daga og eru því samtals 100 miðar. Markmið leiksins eru að nemendur fari eftir siðum skólans, sýni fyrirmyndarhegðun og allir hjálpist að við að skapa jákvætt andrúmsloft í skólanum. Áherslan er á hegðun sem gildir á öllum svæðum utan skólastofu og yfirskriftin er ábyrgð, virðing og vinátta. Skólastjóri er búin að ákveða fyrirfram hvaða röð á spjaldinu verður vinningsröð (10 einstaklingar) og hvaða umbun verður fyrir þá sem eiga miða í vinningsröðinni. Yfir þessu hvílir algjör leynd og einungis skólastjóri er upplýstur um þetta. Upplýsingar um þetta hanga í lokuðu umslagi í glerinu á skrifstofunni. Þegar spjaldið er orðið fullt (búið að gefa 100 miða) sem tekur tvær vikur verður umslagið opnað og nemendum tilkynnt hvaða röð vinnur. Tilkynningin um þetta mun koma 27. apríl. Kær kveðja, starfsfólk Engidalsskóla.
|