|
Upp, upp, upp á fjall…
Engidalsskóli er forystuskóli í umhverfis- og útikennslu í Hafnarfirði. Vikulega er útikennsla föst á stundatöflu hvers bekkjar. Ýmis áhugaverð verkefni eru því alltaf í gangi í skólanum og í nágrenni skólans sjást bekkir í rannsókna- og vettvangsferðum. Nú í haust hafa allir verið duglegir að fylgjast með gróðri og dýralífi, farið í göngu- og hjólaferðir svo eitthvað sem nefnt. Einn mikilvægur þáttur í námi barna í Engidalsskóla er upplifun og fræðsla um umhverfið og mikilvægi náttúrunnar í lífi þeirra. Foreldrar hafa verið hvattir til að fara í ferðir í nágrenni Hafnarfjarðar með bekkjum sinna barna, bæði til að auka félagsleg tengsl og að upplifa okkar stórkostlega nágrenni.Nemendur í 6. bekkjum fóru í Esjugöngu í vor og þá kviknaði sú hugmynd að fara reglulega í fjallaferðir. Laugardaginn 12. september var fyrsta ganga vetrarins og þá fór myndarlegur hópur nemenda, foreldra og kennara á Helgafell. Veðrið lék við okkur og það var sannarlega glaður hópur sem náði toppnum. Á eftir var borðað nesti við Kaldársel og sumir fengu sér vatn að drekka úr Kaldá.
Næst er stefnan tekin á Búrfell



Frá útikennslu í ágúst
6. bekkir fóru í berjamó, kíktu í heimsókn í gróinn garð og skoðuðu lífríkið í Víðistaðatjörn (þar sem var tekinn leikur á strandvellinum).
Við fórum í berjamó en því miður var ekki mikið um ber á þeim slóðum sem við vorum en við fundum bæði rabbabara og sveppi sem við gæddum okkur á þegar heim var komið.


6. SB fór í heimsókn í gróinn garð.

Frá ferðinni niður á Víðistaðatjörn.


|