|
Vinningshafar í 100 miða leik. Nú er 100 miða leik SMT lokið og var hið dularfulla umslag sem innhélt vinning og vinningshafa opnað í gær. Í ljós kom að röð sjö lóðrétt bar sigur úr bítum og í þeirri röð voru: Agnes og Jón Arnar úr 1. HK, Erion úr 1. SS, Úlfa Dís úr 3.VV, Sigurður Dan og Aþena Þöll úr 4.KS, Stefán úr 5. BL, Elín Hanna úr 6.SB og Eyja og Dalrós úr Urriðakoti. Í vinning fá þau út að borða á Hróa Hetti með skólastjóranum, farið verður á skólatíma fljótlega. Við óskum þessum krökkum innilega til hamingju með vinninginn.
|