|
Skólaslit skólaárið 2009-2010 |
|
|
|
|
Föstudaginn 4. júní var skólaárinu 2009-2010 slitið í Engidalsskóla. Nemendur í 1.-3. bekk mættu í sína heimastofu hjá umsjónarkennara. Nemendur 4.-6. bekk mættu á sal skólans og svo til umsjónarkennara í stofur. Nemendur í 7. bekkjum mættu á skólaslit kl. 17.00 og voru þeir formlega útskrifaðir úr Engidalsskóla við hátíðlega athöfn. Margar skemmtilegar uppákomur voru á skólaslitunum eins og tónlistaratriði, þakkarræður frá fulltrúa hvors bekkjar og upplestur. Starfsfólk Engidalsskóla þakkar nemendur og foreldrum kærlega fyrir veturinn og óskar þeim alls hins besta. Myndir frá athöfnunum eru í myndagalleríi. http://engidalsskoli.is/index.php?option=com_rsgallery2&Itemid=25
|