2. bekkur
|
Þann 7. janúar var blómaveisla hjá 2. bekk. Nemendur komu með þotur og sleða og farið var á Víðistaðatún að renna sér. Allir skemmtu sér vel og allt gekk stórslysalaust fyrir sig. Þökkum við kennarar nemendum fyrir góðan dag. |
|
|
Útikennsla hjá 2. SE var mjög ánægjuleg á þrettándanum. Nemendum var skipt í 5 hópa og áttu þeir að búa til snjókalla, sem voru mældir og niðurstöður skráðar. Öllum tókst að hafa þá stærri en 100cm sem var markmiðið, sá stærsti var 132cm. Ummál höfuðs var á bilinu 81cm -100cm. Mælt var hversu digrir þeir voru um magann og reyndust þeir vera 113cm -138cm. Skráð var hvað var notað í augu og hvort þeir höfði hendur og að síðustu áttu nemendur að skrá hvort eitthvað fleira væri á körlunum. Augun reyndust í flestum tilfellum vera steinar en svolítið var af afgangsefni frá áramótaflugeldum. Þeir voru með munn, nef, tölur, trefla, húfur og hár. Hér eru svo glaðir nemendur með sínum köllum. |
|
|
|
|
|
|