100/25 miða leikurinn
SMT- skólafærnileikurinn
Nú er SMT- skólafærnileikurinn (100 miða leikurinn við Víðistaðatún/25 miða leikurinn í Engidal) farinn af stað. Tilgangur leiksins er að hvetja nemendur enn frekar til að fara eftir skólareglunum. Nemendur leggja sig fram um að sýna fyrirmyndarhegðun á almennum svæðum skólans og við það skapast jákvætt andrúmsloft sem leiðir til betri aga.
Leikurinn gengur út á það að nokkrir nemendur á dag fá sérmerkta umbunarmiða sem starfsmennnskólans gefa á almennum svæðum þ.e. á göngum og í matsal. Miðunum geta nemendur skipt út fyrir númer á ákveðnu númeraspjaldi. Fyrirfram er búið að ákveða hvaða röð á spjaldinu vinnur og hvað er í vinning en það veit enginn nema skólastjóri. Að leik loknum er kunngert hvaða röð vinnur og hvað er í vinning.Leikurinn vekur ávallt eftirvæntingu og ánægju
hjá nemendum og er ekki ósvipaður bingói þar sem allir eru með en aðeins
nokkrir vinna. Vinningurinn felst alltaf í því að þeir einstaklingar sem vinna
gera eitthvað saman með skólastjórnendum.
Leikurinn stendur yfir til 16. apríl.