Appelsínugul veðurviðvörun frá kl. 13:30 - 17:00 í dag
Skilaboð til foreldra og forráðamanna
Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi frá kl. 13:30 - 17:00 í dag þriðjudaginn 21. september 2021. Nánar á vef Veðurstofu Íslands
Forsjáraðilar þurfa að meta sjálfir hvort fylgja þurfi börnum úr skóla eða frístundastarfi. Við appelsínugula veðurviðvörun er meiri þörf á að fylgja börnum úr skólanum. Rétt er að hafa í huga að oft getur verið hvasst í efri byggðum. Ef hálka eða ofankoma fylgir veðrinu aukast líkur á að þörf sé fyrir fylgd. Mikilvægt er að forsjáraðilar hafi í huga að röskun getur einnig orðið á frístundastarfi og skipulögðum æfingum í lok skóladags og séu tilbúnir að sækja börn í skóla og frístundastarf ef þess gerist þörf.
Við minnum á leiðbeiningar fyrir foreldra og forráðamenn varðandi röskun á skólatarfi: https://www.shs.is/hvad-get-eg-gert/roskun-a-skolastarfi