Náttúrufræði í 8. bekk
Nemendur í 8. bekk eru að læra um samspil manns og náttúru þessa dagana.
Nemendur í 8. bekk eru að læra um samspil manns og náttúru þessa dagana. Að mörgu er að huga í þeim efnum, m.a. umgengni í skólanum og í nánasta umhverfi, flokkun á rusli, endurnýting og ekki hvað síst virðing og þekking á náttúrunni.Nemendur í 8. MG fóru út og kynntu sér lífið í Djúpaskógi sem er fyrir neðan Víðistaðaskóla. Nú er haust í skóginum og vistkerfið tekur sér hvíld yfir veturinn. Ýmislegt fróðlegt fannst og var tekið með inn í stofu og skoðað nánar.