Skólamatur
Í janúar 2019 var gerð breyting á
fæðisgjaldi til fjölskyldna með börn á grunnskólaaldri í Hafnarfirði.
Ef þrjú systkini eða fleiri eru með lögheimili í
Hafnarfirði, með sama fjölskyldunúmer í Þjóðskrá, eru á grunnskólaaldri og eru
í mataráskrift greiðir Hafnarfjarðarkaupstaður
að fullu hádegisverð frá og með þriðja systkini. Forsjáraðili /forráðamaður
greiðir aldrei hádegisverð fyrir fleiri en tvö systkini á grunnskólaaldri á
sama tíma. Ekki þarf að sækja sérstaklega um niðurfelling á fæðisgjaldi ef
þessi skilyrði eru uppfyllt.
Í einhverjum tilvikum geta aðstæður fjölskyldu
verið aðrar eins og ef börn eru ekki með sama lögheimili og fjölskyldunúmer í
Þjóðskrá og/eða ef eitt eða fleiri systkini eru í grunnskólum utan
Hafnarfjarðar eða í sjálfstætt reknum grunnskólum. Í þessum tilvikum þarf
forsjáraðili/forráðamaður að sækja um niðurfellingu á fæðisgjaldi á Mínum síður
á vef bæjarins (www.hafnarfjordur.is)
fyrir 20. dags mánaðar. Börn geta aldrei verið tvítalin þegar systkinahópur er
í fleiri en einni fjölskyldu, t.d. í sameiginlegri forsjá hjá tveimur
fjölskyldum. Niðurfelling á fæðisgjaldi tekur gildi næsta mánuð á eftir
dagsetningu umsóknar.
Reglur um niðurfellingu eru birtar á vef
bæjarins https://www.hafnarfjordur.is/stjornsysla/frettir/nidurfelling-a-faedisgjaldi-vegna-systkina-i-grunnskolum