Skólastarf 2.-17. nóvember

2.11.2020

Þriðjudaginn 3. nóvember 2020 taka gildi nýjar sóttvarnarreglur og ná til 17. nóvember nk. Að sumu leyti eru sóttvarnarfyrirmæli flóknari nú en áður og krefjast meira af nemendur og skólunum. Meginmarkmiðið er að halda úti sem mestu og bestu skólastarfi miðað við þær sóttvarnakröfur sem gerðar eru. Það er þó óhjákvæmilegt annað en að breytingarnar muni hafa áhrif á skóladaginn hjá öllum nemendum á einhvern hátt. Við kynnum hér aðgerðir sem munu gilda næstu tvær vikurnar. Ekki er á þessari stundu vitað hvað tekur við eftir 17. nóvember.

Kennslustarfsemin verður einfölduð í skólanum og fer öll fram í heimastofum næstu tvær vikurnar. Það verður ekki sund- eða íþróttakennsla í íþróttahúsum og engin kennsla fer fram í list- og verkgreinastofum. Starfsfólki hefur verður skipt í hópa þar sem ekki verða fleiri en 10.

Nemendur í 1.-4. bekk fá fullan skóladag og mæta kl. 8:10, skólinn opnar kl 8:00. Nemendur fara út í frímínútur eins og venjulega og eiga ekki að blandast öðrum nemendum þar úr öðrum kennsluhólfum. Starfsemi frístundarheimilis verður í sama rými og kennsla.

1. bekk verður kennt í húsnæði Álfakots og þar fer frístundastarfið líka fram.

2. -4. bekk verður kennt í heimastofum og nota sama inngang og venjulega. Frístundastarfið fer fram á sama svæði.

Ekki verður hægt að svara í síma Álfakots 5554434 fyrir hádegi og er foreldurm bent á að nota númerið 6645527 eða senda póst. Frístundastarf í 2. og 3. bekk mun nota símanúmerið 6214673.

Nemendum í 5. og 6. bekk verður kennt 4 kennslustundir á dag. Hver bekkur (hámark 25 nemendur) er sérstakt kennsluhólf og blandast ekki nemendum annarra bekkja. Nemendur fara ekki út í frímínútur en geta farið í göngutúr sem skipulagður er af kennurum. Nemendur mega búast við auknu námi heima sökum styttingar á daglegri kennslu í skóla. Þar sem EKKI er hægt að halda 2ja metra fjarlægðarreglu í kennslustofum þurfa ALLIR nemendur í 5.-10.bekk að vera með grímur í skólanum allan skóladaginn, bæði á göngum skólans og í kennslustundum. Þeir nemendur sem ekki koma með grímur að heiman geta gengið að einnota grímum í anddyri skólans.

5. bekkur genur inn um aðalinngang skólans og notar fatahengið þar inn af, kennsla hefst kl. 8:20 og lýkur um hádegið.

6. bekkur gengur inn um aðalinngang skólans og fer beint upp að bekkjarstofu með skó og yfirhafnir með sér, kennsla hefst kl. 8:10 og lýkur um 11:30

Matarþjónusta ALLRA nemenda mun vera með hefðbundnu sniði, þ.e. þeir nemendur sem eru í áskrift að ávöxtum og hádegismat í nóvember munu fá matinn sinn í samræmi við áskrift. Öll neysla matar mun þó færast inn í kennslustofur þar sem nemendur fá hádegisverð afhentan í einnota bökkum. Hafragrautur að morgni fellur niður þessar tvær vikur en síðdegishressing í frístundaheimili er óbreytt. Áfram er hægt að koma með nesti í skólann.

Foreldrar eiga ekki að koma inn í skóla nema í undantekningartilvikum, þ.e. ef skóli kallar á foreldra vegna veikinda eða að annarra sérstakra aðstæðna hjá börnum þeirra. Foreldrar sem fylgja börnum sínum í skólann og sækja skulu sleppa þeim og taka á móti þeim við útidyr og ekki fara inn í skóla hvernig sem veðurfari er háttað. Almennt gilda sömu reglur um veikindi og leyfi og verið hafa.

Starfsemi félagsmiðstöðva mun alfarið færast í rafrænt form. Greiningar sál-/talmeinafræðinga (skólaþjónusta) mun áfram verða til staðar undir ströngum sóttvarnareglum en öll ráðgjöf til skóla/foreldra frá ytri ráðgjöfum mun verða í gegnum fjarfundabúnað. Kennsla nemenda í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar mun falla niður í grunnskólunum.

Sóttvarnaraðgerðirnar eru íþyngjandi fyrir skólastarfið, bæði starfsfólk og nemendur. Við biðjum um þolinmæði gagnvart breytingum á starfsemi sem mun eiga sér stað, bæði styttingu skóladags hjá hluta nemenda og takmarkandi kennslustarfsemi undir þessum kringumstæðum. Mikilvægt er að horfa jákvætt á nýjar aðstæður því hæfni manns til að aðlaga sig að breyttum aðstæðum er eiginleiki sem gefur fleiri tækifæri í lífinu og eykur þrautseigju okkar.


Engidalsskóli | Breiðvangur 42, 220 Hafnarfjörður
Sími 555 - 4433 | Netfang engidalsskoli@engidalsskoli.is