Skólastarf í upphafi nýs árs
Hafnarfjarðarbær/mennta- og lýðheilsusvið óskar ykkur gleðilegs
árs og þakkar fyrir samstarfið á árinu 2021. Árið reyndi á okkur í
kórónaveirufaraldri og við lok árs virðast enn blasa við að frekari áskoranir.
Sökum aðstæðna núna er nauðsynlegt að gera breytingar á grunnskólastarfinu í
upphafi nýs árs.
Fyrsti
skóladagur hvers skóla eftir jólafrí verður skipulagsdagur, óháð því hvort það
hafði verið ráðgert í samþykktu skóladagatali hvers skóla. Hver skóli mun
tilkynna nánar um upphaf skólastarfsins hjá sér til ykkar. Skólastaf í
Engidalsskóla hefst samkvæmt stundaskrá 4.
janúar 2022.
Skólastarf í upphafi nýs árs verður
miðað við hefðbundið skólastarf og fulla stundaskrá nemenda. Vegna stöðunnar á
kórónaveirufaraldrinum er samt líklegt að skólastarf muni enn frekast raskast á
næstu vikum. Þannig verður að telja að skólarnir muni geta átt í meiri
erfiðleikum en áður að manna alla kennslu sökum forfalla starfsmanna vegna
veikinda, sóttkvía og smitgáta og aðgangur að forfallakennurum er takmarkaður
og þeir forfallast líka. Kennsla í einstaka bekkjum getum riðlast frekar og
skólar munu forgangsraða í forfallakennslu þannig að yngri nemendur gangi fyrir
þeim eldri líkt og áður. Á hverjum tíma verður samt haldið uppi eins mikilli
kennslu og hægt verður. Sóttvarnareglur á hverjum tíma ráða hér för í samspili
við faraldurinn.
Í núverandi reglugerð um sóttvarnir,
sem gildir til 12.
janúar 2022,
er kveðið á um hámarksfjölda nemendahópa saman í skólum upp á 50 nemendur.
Undantekningar hafa verið einhverjar, eins og nemendafjöldi á göngum skóla, en
nú var sú tilkynning að berast að undanþágan gildir ekki lengur um matsali
skóla. Það felur í sér að skólarnir þurfa að loka matsölunum og sökum þess
verður ekki hægt að afhenda nemendum hádegismat meðan reglugerðin er í gildi.
Nemendur þurfa því að koma með hádegisnesti að heiman í skólann á meðan. En
áfram verður boðið upp á hafragraut að morgni, morgunávexti og
síðdegishressingu fyrir nemendur líkt og áður, eins og pantað hefur verið.
Það er búið að senda út greiðsluseðla
til foreldra vegna matarþjónustunnar í janúar. Það er ljóst að þeir eru rangir
vegna þess að nemendur munu ekki fá allan þann hádegismat sem áætlað hafði
verið að afhenda þeim. Okkar ósk er að foreldrar greiði samt útsenda seðla,
nemendur fái matinn síðar og lækkun komi á greiðsluseðli í febrúar sem því
nemur. Óskað er biðlundar gagnvart þessu misræmi sem skapast núna því það mun
verða leiðrétt.
Kórónaveirufaraldurinn reynir á okkur
öll. Við þökkum ykkur þrautseigjuna fram að þessu og óskum þess að þolinmæði og
góðvild ríki í öllum samskiptum í skólaumhverfinu og á heimilum á nýju ári. Það
mun gera lífið léttara og auðveldar okkur að yfirstíga þá hjalla sem mögulega
eru fram undan.
Skrifstofa mennta- og lýðheilsusviðs
Hafnarfjarðar.