Úrslit í smásögukeppni FEKÍ
Úrslit í smásögukeppni Félags enskukennara voru tilkynnt á Bessastöðum þann 8. mars sl. og var þemað að þessu sinni "Dreams". Máni Hrafn Stefánsson nemandi í 10.ÞM hlaut viðurkenningu fyrir smásögu sína "Emilia" og óskum við honum innilega til hamingju með það. Fyrir áhugasama þá verða sögurnar birtar á heimasíðu FEKÍ ( http://ki.is/feki/ ) á næstu dögum.