Umhverfissáttmáli Engidalsskóla
Umhverfissáttmáli Engidalsskóla
· Engidalsskóli leggur áherslu á umhverfismennt með það að markmiði að nemendur geri sér grein fyrir gildi umhverfismenntar og móti sér lífstíl í anda hennar.
· Engidalsskóli leggur áherslu á að allt skólasamfélagið taki þátt í starfi skólans að umhverfismálum, starfsfólk skólans, nemendur og foreldrar.
· Engidalsskóli leggur áherslu á að nemendur kynnist nánasta umhverfi, læri að bera virðingu fyrir náttúrunni og þroski með sér alþjóðavitund um umhverfismál.
· Engidalsskóli leggur áherslu á að nemendur taki virkan þátt í að flokka úrgang til endurvinnslu og endurnýtingar og virði þannig auðlindir jarðarinnar.
· Engidalsskóli leggur áherslu á að minnka orkunotkun og auka skilning á mikilvægi þess.
· Engidalsskóli leggur áherslu á að skólinn sé til fyrirmyndar í umhverfisstarfi sem stefnir að sjálfbærri þróun.
· Engidalsskóli leggur áherslu á að umhverfisstefnunni verði viðhaldið og hún endurskoðuð í samræmi við innri og ytri aðstæður.
Umhverfisnefnd Engidalsskóla
- Eldri færsla
- Nýrri færsla