Útivistartími
Um svipað leiti og skólinn hefst breytist útivistartími barna og unglinga.
Virðum reglurnar
Börn 12 ára og yngri mega ekki vera úti eftir klukkan 20:00 eftir 1. september. Börn 12 – 16 ára mega lengst vera úti til 22:00 á kvöldin en til er undanþága sem leyfir þeim að fara heim af viðurkenndri æskulýðsstarfsemi eða íþróttaæfingu. Slíkar undanþágur verða æ fátíðari og foreldrar látnir vita um slíkt.
Foreldrar hafa fullan rétt til að stytta þennan útivistartíma, taka þarf mið af aðstæðum hverju sinni og foreldrar bera ábyrgð á börnum sínum og unglingum.
Virkir foreldrar
Þátttaka foreldra í Foreldrarölti hefur stutt við að útivistartíma sé framfylgt auk þess sem það að foreldrar hittast gefur þeim tækifæri á að standa enn betur saman því að huga að velferð barna.
Foreldrar, stöndum saman að því að tryggja að börnin okkar alist upp í heilbrigðu umhverfi.
Geir Bjarnason forvarnafulltrúi
- Eldri færsla
- Nýrri færsla