Upplýsingar:

Starfsskrá Tómstundamiðstöðva Hafnarfjarðar

Handbók Álfakots

Starfsáætlun Álfakots 2020-2021

Reiknivél fyrir frístundaheimili https://www.hafnarfjordur.is/ibuar/skolar-og-born/fristundaheimili

Frístundaheimilið Álfakot býður uppá fjölbreytt tómstundastarf fyrir nemendur í 1. - 4. bekk eftir að daglegum skólatíma lýkur. Foreldrar skrá börn sín eftir þörfum hvers og eins. Frístundaheimilið er staðsett á þremur stöðum í skólanum.

Opnunartími er frá kl. 13:30 til 17:00 á virkum dögum. Þegar frí er í skólanum er frístundaheimilið opið frá klukkan 8:00-16:30 að undanskildu vetrarfríi en þá er lokað i frístundaheimilinu. Þessa daga er auglýst sérstaklega eftir skráningu þeirra barna sem eiga að mæta.

Í frístundaheimilinu kynnast börnin hinum ýmsu tómstundum. Leitast er við að hafa starfið sem fjölbreyttast svo að allir finni eitthvað við sitt hæfi m.a. með útiveru, fjölbreyttum leikföngum, spilum, föndurefni og kubbum.

Beinn sími í frístundaheimilinu Álfakoti starfsstöðinni í Engidal er 555-4434. Netfang Álfakots er alfakot@hafnarfjordur.is

Deildarstjóri yfir tómstundamiðstöðinni er Arnheiður Guðmundsdóttir.

Frístundaheimilið Álfakot er með facebooksíðu þar sem alls konar upplýsingar koma fram og einnig myndir úr starfinu.

 

Umsóknir og gjaldskrá

Sótt eru um vistun í gegnum “Mínar síður” á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar. Ef upp koma vandamál varðandi skráningu í íbúagáttinni leitið aðstoðar þjónustuvers Hafnarfjarðar í síma 585-5500.

Ekki er hægt að tryggja öllum börnum dvöl  í frístundaheimili fyrr en tekist hefur að manna stöður frístundaleiðbeinenda.  Börn sem eru að hefja skólagöngu hafa forgang um dvöl á frístundaheimilum. Börn sem þurfa stuðning  fá dvöl um leið og búið er að ráða inn stuðningsfulltrúa fyrir viðkomandi barn.
Staðfesting verður send á foreldra þegar barnið hefur fengið dvöl á frístundarheimilinu.

Gjaldskrá á heimasíðu Hafnarfjarðabæjar


Engidalsskóli | Breiðvangur 42, 220 Hafnarfjörður
Sími 555 - 4433 | Netfang engidalsskoli@engidalsskoli.is