Tómstundir

Tómstundastarf nemenda og nemendafélag skólans

Frístundaheimilið Álfakot býður uppá fjölbreytt tómstundastarf fyrir nemendur í 1. - 4. bekk eftir að daglegum skólatíma lýkur. Foreldrar skrá börn sín eftir þörfum hvers og eins. Frístundaheimilið er staðsett á jarðhæð en er með sérinngang.

Opnunartími er frá kl. 13:10 til 17:00 á virkum dögum. Þegar frí er í skólanum á virkum dögum er opið í frístundaheimilinu frá klukkan 8:00 um morguninn og til 17:00 að undanskildu vetrarfríi en þá er lokað í frístundaheimilinu. Þessa daga er auglýst sérstaklega eftir skráningu þeirra barna sem eiga að mæta.

Í frístundaheimilinu kynnast börnin hinum ýmsu tómstundum. Leitast er við að hafa starfið sem fjölbreyttast svo að allir finni eitthvað við sitt hæfi m.a. með útiveru, fjölbreyttum leikföngum, spilum, föndurefni og kubbum.

Engidalsskóli er í nánu samstarfi við félagsmiðstöðina Hraunið. Þar geta börnin og unglingarnir sótt ýmsa viðburði, tekið þátt í skemmtilegum leikjum, ferðalögum og keppnum. Þá eru haldin böll fyrir ýmsa aldurshópa í samstarfi skólans og félagsmiðstöðvarinnar.




Engidalsskóli | Breiðvangur 42, 220 Hafnarfjörður
Sími 555 - 4433 | Netfang engidalsskoli@engidalsskoli.is