Umhverfissáttmáli Engidalsskóla

           Umhverfissáttmáli Engidalsskóla

·     Engidalsskóli leggur áherslu á umhverfismennt með það að markmiði að nemendur geri sér grein fyrir gildi umhverfismenntar og móti sér lífstíl í anda hennar.

·     Engidalsskóli leggur áherslu á að allt skólasamfélagið taki þátt í starfi skólans að umhverfismálum, starfsfólk skólans, nemendur og foreldrar.

·     Engidalsskóli leggur áherslu á að nemendur kynnist nánasta umhverfi,  læri að bera virðingu fyrir náttúrunni og þroski með sér alþjóðavitund um umhverfismál.

·     Engidalsskóli leggur áherslu á að nemendur taki virkan þátt í að flokka úrgang til endurvinnslu og endurnýtingar og virði þannig auðlindir jarðarinnar.

·      Engidalsskóli leggur áherslu á að minnka orkunotkun og auka skilning á mikilvægi þess.

·     Engidalsskóli leggur áherslu á að skólinn sé til fyrirmyndar í umhverfisstarfi sem stefnir að sjálfbærri  þróun.

·     Engidalsskóli leggur áherslu á að umhverfisstefnunni verði viðhaldið og hún endurskoðuð í samræmi við innri og ytri aðstæður.

Umhverfisnefnd Engidalsskóla


Engidalsskóli | Breiðvangur 42, 220 Hafnarfjörður
Sími 555 - 4433 | Netfang engidalsskoli@engidalsskoli.is