Sérkennsla

Skipulag stoðþjónustu og aðlöguð kennsla.

Í Engidalsskóla er áhersla á að allir nemendur séu fullgildir í skólastarfinu án tillits til líkamlegs eða andlegs atgervis. Leitað er allra leiða til þess að nemendur geti stundað nám við hæfi í skólanum.

Við stoðþjónustu skólans starfa sérkennarar, grunnskólakennarar, þroskaþjálfar, námsráðgjafar, leiðbeinendur með  sérfræðimenntun og stuðningsfulltrúar.

Yfirumsjón og skipulag er í höndum Ingibjargar Maríu Aadnegard, deildarstjóra.

Kennsla í námshópum:

Fyrirkomulag kennslu í skólanum almennt felur í sér kennslu í fámennari námshópum. Í þeim er hægt að koma til móts við nemendur sem þurfa aukna eða sértæka aðstoð í námi. Þetta skipulag er í þróun í skólanum.


Engidalsskóli | Breiðvangur 42, 220 Hafnarfjörður
Sími 555 - 4433 | Netfang engidalsskoli@engidalsskoli.is