Nemendafélag Engidalsskóli

2.10.2020

Í dag var stofnað Nemendafélag Engidalsskóla. 

Kosin var átta manna stjórn úr 5. og 6. bekk og skipa eftirtaldir nemendur stjónina:
Tómas Helgi Heiðarsson
Kristín Vala Björgvinsdóttir
Sunna Björk Magnúsdóttir
Daníel Leví Heiðarsson Barrero

Bartosz Baginski
Brynja Dan Agnarsdóttir
Róbert Hugi Sævarsson
Júlía Ísey Hjálmarsdóttir

Lög Nemendafélags Engidalsskóla

1. Félagið heitir Nemendafélag Engidalsskóla, skammstafað NFES. Félagar eru nemendur í Engidalsskóla 1.-6. bekk.

2. Tilgangur félagsins er að vinna að félags- og hagsmunmálum nemenda skólans á lýðræðislegan hátt.
Fulltrúar félagsins er kosnir í byrjun skólaárs. 4 fulltrúar úr hverjum árgangi í 5. – 6. bekk, tveir strákar og tvær stúlkur. Nemendur gefa kost á sér og síðan fer fram leynileg kosning í hverjum bekk. Í nemendaráði eru því 8 fulltrúar sem skipast þannig: formaður, varaformaður og 6 meðstjórnendur. Kjörgengir eru nemendur í 5. og 6. bekk. Formaður skal vera úr 6.bekk.

3. Kosning fer fram á haustönn eða í síðasta lagi 1. október ár hvert.

4. Formaður og varaformaður í nemendafélaginu eru fulltrúar nemenda í skólaráði.

5. Deildastjóri frístundar og skólastjóri bera ábyrgð á starfsemi nemendafélagsins og boða til funda a.m.k. þrisvar sinnum á skólaári.

6. Endurskoða skal þessi lög á fyrsta fundi NFES í upphafi hvers skólaárs.

7. Ákvarðanir á fundum er færðar í fundargerð og birtar á heimasíðu skólans. Hlutverk nemendafélagsins er að ræða ýmis hagsmunamál nemenda, koma skoðunum nemenda á framfæri við stjórnendur og skólayfirvöld og stuðla að því að nemendur verði hæfari að lifa og starfa í lýðræðisþjóðfélagi.

Fulltrúar í stjórn nemendafélagssins bera upp mál til umfjöllunar. Meirihluti nægir til þess að samþykkja mál innan nemendafélagsins.


Engidalsskóli | Breiðvangur 42, 220 Hafnarfjörður
Sími 555 - 4433 | Netfang engidalsskoli@engidalsskoli.is