Skólaslit í Engidalsskóla vorið 2021

10. júní 2021

5.6.2021

10. júní verða skólaslit í Engidalsskóla. Athöfnin verður í þrennu lagi þetta árið og er eitt foreldri/forsjáraðili velkominn með hverjum nemenda. Byrjað verður á stuttu ávarpi skólastjóra og í framhaldi af því tónlistaratriði í flutningi nemenda. Eftir tónlistaratriðið munu umsjónarkennarar afhenda vitnisburð og að lokum munum við syngja saman texta sem hún Anna tónmenntakennari við skólann samdi um Engidalsskóla. Við lítum á þetta sem einn af hátíðisdögum skólaársins og hvetjum nemendur til að mæta prúðbúna á skólaslitin.

Starfsdagur er í Álfakoti þennan dag og því lokað.

kl. 8:30 Skólaslit 1.-2. bekkur.

kl. 9:30 Skólaslit 3.-4. bekkur.

kl. 10:30 Skólaslit 5.-6. bekkur


Engidalsskóli | Breiðvangur 42, 220 Hafnarfjörður
Sími 555 - 4433 | Netfang engidalsskoli@engidalsskoli.is